Það er komið að því!!!
Betra seint en aldrei, er það ekki?

Hérna koma nefndirnar fyrir útskriftaferðina okkar...JIBBÍ JEI

Matarnefnd:
Bjögga, Rósa og Hrefna (sem líka var kosin tónlistarstjóri)
Drykkjanefnd:
Brynhildur, Ragga M og Arnþrúður ....OooooOGgggg FÁ SÉR!
Búninganefnd:
Sigrún og Unnur (ætli það rigni í Grímsey?)

Skemmtinefnd:
Björg (Ungfrú Grímsey), Ragga R, Rakel og Eyja
Annað sem talað var um á fundinum okkar fína var fara helgina 22.-25. maí, að borða á Kríunni eitt kvöld og nota bingópeningana í ferðina. Myndataka sem Óli hennar Röggu M ætlar að hætta sér út var dagsett 28.maí (daginn fyrir lokakynningu svo allir geti verið með) SVO gaman saman
Heimasíðan okkar bar líka á góma og hugmynd um að setja kynningu á lokaverkefninum á hana. Að mínu mati ekkert nema góð hugmynd!
Jæja, þá held ég að ég (obobbobb nástað

) sé búin að koma frá mér aðalatriðunum frá þessum fundi.
Ef einhverjir sem ekki eru í nefnd hafa áhuga á að skella sér í eina af þessum spennandi nefndum er bara að láta vita með commenti hér að neðan.
YFIR og ÚT
Eyja Lions
P.s. stefni á hörku kveðjupartý fyrir Lions við tækifæri, kannski bara eftir lokaskil hvuuurr veit...